Meistarafyrirlestur: Jarðskjálftagreining á samverkandi stálbitabrú

Hvenær hefst þessi viðburður: 
10. febrúar 2010 - 16:30 to 17:30

Meistarafyrirlestur

Miðvikudaginn 10. febrúar 2010
kl. 16:30 í stofu 157 í VR-II

Jarðskjálftagreining á samverkandi stálbitabrú: 
Nærsviðsáhrif við Suðurlandsskjálftana 2000 og 2008

Jón Guðni Guðmundsson

Verkefnið fjallar um jarðskjálftagreiningu á samverkandi stál-steypu bitabrú með sérstaka áherslu á áhrif sem fram kom þegar mannvirki stendur nálægt skjálftaupptökum. Nýja Þjórsárbrúin er notuð sem viðfangsefni í rannsókninni. Hún er staðsett á einu virkasta jarðskjálftasvæði Íslands, þar sem finna má mörg misgengi sem hafa hreyfst eftir landnám. Skoðaðar voru mældar tímaraðir frá Suðurlandsskjálftunum 2000 og 2008 þar sem leitað var eftir nærsviðshraðapúlsum og þeir greindir. Búið var til tölvulíkan af brúnni í einingaforriti og á það keyrðar mældar og tilbúnar nærsviðstímaraðir. Rannsóknin sýndi að nærsviðsáhrif skipta verulegu máli fyrir brýr með langan sveiflutíma.

Leiðbeinendur:  Bjarni Bessason og Einar Hafliðason
Fulltrúi deildar: Baldvin Einarsson

deila á facebook