Meistarafyrirlestur í líffræði: Einangrun og lýsing á ytri himnu próteini í Moritella viscosa

Hvenær hefst þessi viðburður: 
4. febrúar 2010 - 15:00 to 16:00

Meistaraprófsfyrirlestur í líffræði - Haraldur Björnsson: Einangrun og lýsing á ytri himnu próteini í Moritella viscosa - Isolation and characterisation of an outer membrane protein in Moritella viscosa

Fimmtudaginn 4. febrúar 2010 kl: 15:00 – 16:00 Askja, N-132

Moritella viscosa eru Gram neikvæðar, kuldakærar bakteríur sem valda vetrarsárum í eldisfiski, alinn í sjó undir 10 °C. Bóluefni eru til gegn sjúkdómnum en virkni þeirra hefur verið nokkuð umdeild undanfarið. Helsti mótefnavaki M. viscosa hefur áður verið greindur og nefndur 17/19 kDa mótefnavakinn. Sýnt hefur verið fram próteasa K næmi hans, sem bendir til þess að mótefnavakinn sé prótein.

Í þessari rannsókn var u.þ.b. 20 kDa mótefnavakinn einangraður og amínósýruraðgreining framkvæmd með Maldi-Tof. Raðgreinda próteinið var nefnt MvOmp1. Genið sem skráir fyrir próteininu, mvomp1, var að fullu raðgreint úr 10 stofnum af mismunandi sermisgerðum bakteríunnar. MvOmp1 reyndist vera tiltölulega vel varðveitt í öllum stofnum M. viscosa auk þess sem samsvörun fannst við Escherichia coli OmpA og Neisseria NspA prótein. Athugun á byggingu MvOmp1 staðfesti að próteinið er innlimað í himnu auk þess sem sýnt var fram á að próteinið samanstendur af átta ósamsíða β-bárum, þremur stuttum millihimnu lykkjum og fjórum löngum utanfrumu lykkjum. Geninu, mvomp1, var komið inn í tjáningarferju, umbreytt í E. coli og tjáð. Tjáning MvOmp1 sýndi fram á mótefnasvörun í fjölstofna M. viscosa mótsermi.

Leiðbeinendur: Dr. Eva Benediktsdóttir, dósent við Háskóla Íslands og Dr. Viggó Þór Marteinsson, fagstjóri hjá Matís

Prófdómari: Dr. Guðmundur Óli Hreggviðsson, fagstjóri hjá Matís

deila á facebook