
Meistarafyrirlestur í Jarðvísindadeild
Jarðfræði og ummyndun í nágrenni Reykjafells á Hellisheiði
Fimmtudaginn 2. febrúar 2012 kl. 15:40, stofu 132 í Öskju
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
Ágrip:
Fjallað er um niðurstöður úr ítarlegri rannsókn á jarðlögum, innskotum, ummyndun og vatnsæðum í þremur háhitaholum í nágrenni Reykjafells á Hellisheiði. Móbergsmyndanir, sem tengjast Hengilseldstöðinni eru ríkjandi niður á um 1100 m dýpi en hraunlög þar neðan við. Innskot verða algeng á um 1000 m dýpi og eykst tíðni þeirra með dýpi. Engar stórar vatnsæðar greindust fyrir neðan 1600 m. Samanburður á berghita og ummyndun bendir til kólnunar í borholu sem staðsett er á 2000 ára gossprungu en lítils háttar hitnun á sér stað í jarðhitakerfinu undir Reykjafelli. Efnasamsetning súlfíða og oxíða í holu HE-42 norðvestan Reykjafells var greind með örgreini og XRD við Háskóla Íslands. Pýrít og pyrrhotít finnast víðast hvar í holunni sem gefur til kynna að þau endurspegli ekki hlutþrýsting brennisteins í kerfinu. Oxíð koma bæði fram sem frumsteindir (oft með ilmenít afblöndun) og sem ummyndunarsteindir.
Leiðbeinendur: Björn S. Harðarson, Hjalti Franzson og Níels Óskarsson
Prófdómari: Árný E. Sveinbjörnsdóttir
