Meistarafyrirlestur í iðnaðarverkfræði, Financial Feasibility Assessment.

Hvenær hefst þessi viðburður: 
3. febrúar 2010 - 11:30 to 12:30
Miðvikudaginn 3. febrúar nk. kl. 11:30 heldur Anna Regína Björnsdóttir fyrirlestur um verkefni sitt til 60 eininga meistaraprófs í iðnaðarverkfræði.  Verkefnið heitir Financial Feasibility Assessment. Fyrirlesturinn verður fluttur í stofu V-158 í VR2.

Þetta MS verkefni fjallar um smíði og notkun líkana við greiningu á arðsemi fjárfestingarverkefna. Fjárfestingarverkefni eru í eðli sínu ólík og því er flókið að hanna og smíða líkan sem uppfyllir þarfir allra iðngreina. Flest arðsemilíkön eru smíðuð sérstaklega fyrir ákveðinn iðnað, og eru því ekki aðgengileg fyrir almenning. Aðferðir við áhættugreiningu eru kynntar, þar sem óvissa getur haft mikil áhrif á arðsemimat fjárfestingarverkefna. Einnig er kynnt ný aðferð til að spá fyrir um á hvaða ári sé hagstæðast að selja fjárfestinguna.

Bygging jarðvarmavirkjunar er notuð sem sýnidæmi til að sýna hvernig hægt sé að nota líkan til að meta arðsemi og áhættu verkefnis. Niðurstaða verkefnisins er sú að nota ætti núvirði, innri vexti og leiðrétta innri vexti til að meta arðsemi fjárfestingarverkefna. Arðsemilíkön ættu að endurspegla þarfir og væntingar notenda, og gefa kost á að nota næmnigreiningu, sviðsmyndagreiningu og hermun  til að greina áhættu tengda fjárfestingarverkefninu

Leiðbeinendur Önnu Regínu eru þeir Páll Jensson, prófessor í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands, og Þorbjörg Sæmundsdóttir verkfræðingur hjá Vífilfelli. Fulltrúi deildar er Helgi Þór Ingason dósent við IVT deild HÍ.
deila á facebook