Maximilian Conrad: 'The Missing Link in EU Democracy?'
|
03/09/2010 - 12:00 |
Háskólatorg
Stofa 103 |
Alþjóðamálastofnun og rannsóknarsetur um smáríki býður til hádegisfundar föstudaginn 3. september í HT 103. Fundurinn er sá fyrsti í fundaröð stofnunarinnar um Evrópumál, "Evrópa: Samræður við fræðimenn." Munu hádegisfundir fara fram á sama stað hvern föstudag nema annað sé tekið fram en fulla dagskrá má finna á vef stofnunarinnar www.hi.is/ams eða á facebook síðu stofnunarinnar, sem allir eru hvattir til að gerast aðdáendur að.
Dr. Maximilian Conrad er nýráðinn lektor í Evrópufræðum við Háskóla Íslands og mun hann fjalla um lýðræðishallann innan ESB.

