Mannfræði fyrir byrjendur

Hvenær hefst þessi viðburður: 
10. nóvember 2009 - 20:00 to 21:30

Í þessari kynningu á vegum Mannfræðifélags Íslands munu Þórður Kristinsson og Gunnar Þór Jóhannesson fjalla um hvernig mannfræði er kennd á framhaldsskólastigi hérlendis og hvernig þeir reyndu að koma til móts við þá þörf sem var til staðar fyrir kennsluefni á íslensku í faginu.

Síðasta kennslubók í mannfræði fyrir framhaldsskólastigið, Manneskjan er mesta undrið, eftir Harald Ólafsson kom út árið 1974. Nú var að koma út tilraunaútgáfa af kennslubók eftir fyrirlesarana og tilheyrandi verkefnabrunnur á netinu. Fyrirlesaranir segja frá aðdraganda þess að þeir réðust í kennsluefnisgerðina og hvernig þeir vonast eftir að hún nýtist í kennslu og sem kynning á faginu.

Allir þeir sem hafa áhuga á mannfræði og hvernig hún birtist í samfélagsumræðunni eða hafa skoðanir á því hvernig hún ætti að vera kennd ættu að mæta á kynninguna og leggja orð í belg.

Dr. Gunnar Þór Jóhannesson starfar sem nýdoktor hjá Mannfræðistofnun HÍ og verkefnisstjóri hjá Félagsvísindastofnun HÍ og hefur kennt sem stundakennari í mannfræði. Þórður Kristinsson hefur kennt mannfræði og aðrar félagsvísindagreinar bæði á háskólastigi og framhaldsskólastigi og kennir nú við Kvennaskólann í Reykjavík.

deila á facebook