Mandalaformið og kabbalíska lífstréð-Hallfríður Ragnheiðardóttir

Hvenær hefst þessi viðburður: 
4. nóvember 2009 - 12:25 to 14:15

Hallfríður Ragnheiðardóttir M.A. í íslenskum bókmenntum og starfar sem draumaþerapisti.

Hallfríður fjallar um tvær lýsingar úr sagnaarfi okkar á ferðalagi hetjunnar í annan heim, annars vegar för Freyju, gyðju ástar og frjósemi, inn í bergið til dverga en hins vegar undirheimaför Skírnis, skósveins frjósemisguðsins Freys, í Gymisgarða. Fyrirlesturinn byggir á mandalaforminu, kabbalíska lífstrénu og tarot-trompi númer fjórtán í tengslum við hin fjórtán rými sem unnið er með í leikhúsverkinu Hnykli og frumsýnt verður 6. nóvember næstkomandi.

Fyrirlesturinn er í tengslum við listasýninguna Hnykil sem er frumsýnd 6.nóvember n.k. Sýningin er sýnd í Norðurpólnum, Gróttu.

Miðasala í síma 5959170, Bókasafni Seltjarnarness.

Nánari upplýsingar má finna á Facebook síðunni okkar, Hnykill-Leikhúsdekur.

deila á facebook