
Föstudaginn, 10. september, verður málþing á vegum Barna- og unglingabókmenntahátíðarinnar Mýrarinnar (sem Háskóli Íslands, Norræna húsið o.fl. standa fyrir) í Norræna húsinu frá kl. 14-17, um tengsl texta og myndlýsinga í barnabókum. Eftir fyrirlestrana verða pallborðsumræður undir stjórn Ragnheiðar Gestsdóttur og síðan verður boðið upp á léttar veitingar. Þingið fer fram á ensku.
Þátttaka og léttar veitingar eru ókeypis en fólk er beðið að skrá sig á thordisg@gmail.com. Dagskráin er á www.myrin.is og hér fyrir neðan.
14.00-14.30: Dr. Elina Druker, Stokkhólmsháskóla: Recent trends in Nordic Picture Books.
14.30-15.00: Kristín Ragna Gunnarsdóttir, teiknari: The relationship between words & pictures in Icelandic picture books. Do the pictures stand a chance?
15:00-15.30: Dr. Sirke Happonen, Helsinkiháskóla: The Dancing Moominvalley: A Choreographic View on Tove Jansson’s Art and Literature.
15:30-16.00: Þórarinn Leifsson rithöfundur og myndskreytir: What does a Cannibal and a Librarian have in common with a Street Painter?
Nánar um dagskrá og erlenda fyrirlesara á www.myrin.is
