
Á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar sem haldin var í Kaupmannahöfn í desember 2009 var Ísland heiðrað sérstaklega fyrir að halda kynjasjónarhorni á lofti í þeim samningaviðræðum sem þar áttu sér stað. Margir spyrja sig hvað kynjasjónarmið koma baráttunni gegn óæskilegum loftslagsbreytingum við. Svarið er þríþætt: Í fyrsta lagi hegða kynin sér misjafnlega og hafa mismunandi áhrif á umhverfið. Konur sem neytendur og stjónendur neyslu heimlanna geta haft önnur og meiri áhrif en karlar til að draga úr notkun óæskilegra efna. Í öðru lagi hefur komið í ljós að konur greiða hamfarir sem dunið hafa á jarðarbúum mun dýrara verði en karlar, jafnvel með lífinu sjálfu. Í þriðja lagi blasir við sú staðreynd að á meðan loftslagsbreytingarnar varða líf og framtíð bæði kvenna og karla eru það fyrst og fremst karlar sem sitja við samningaborðin og móta framtíðarstefnu mannkyns.
Á málþinginu verður fjallað um ýmsar hliðar umræðunnar um loftslagsbreytingar út frjá kynjasjónarhorni, frá heimskautsbaug til heitra Afríkulanda. Að loknum erindum verða pallborðsumræður.
Samstarfsaðilar um málþingið verða Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, Jafnréttisstofa, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og EDDA – öndvegissetur.
Dagskrá:
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra flytur ávarp
Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu „Kynjavíddir í alþjóðlegri umræðu um loftslagsbreytingar“
Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent í guðfræðilegri siðfræði „Loftslagsbreytingar í guðfræðilegri siðfræði: Femínísk orðræða um lífvænan náttúruskilning"
Anna Karlsdóttir, lektor í mannvistarlandfræði og ferðamálafræði „Strandbyggðir í norðri og áhrif loftslagsbreytinga á lífshætti“
Magnfríður Júlíusdóttir, lektor í mannvistarlandfræði. „Loftslagsbreytingar og kynjuð þróunarorðræða um Afríku: Gamalt stef í nýjum umbúðum?“
Pallborðsumræður
Öll velkomin!
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við HÍ Jafnréttisstofa Stofnun Vilhjálms Stefánssonar EDDA – öndvegissetur
