Málþing um íslenskar leiklistarrannsóknir

Hvenær hefst þessi viðburður: 
14. nóvember 2009 - 14:00 to 16:30

Laugardaginn 14. nóvember nk. efna Leikminjasafn Íslands og Listaháskóli Íslands til málstofu um íslenska leiklistarfræði.  Málstofan er haldin í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og Hugvísindasvið Háskóla Íslands.  Hún verður haldin í fundasal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu og hefst kl. 14.00  Þar munu eftirtaldir fræðimenn flytja stutt erindi:

Sveinn Einarsson, stjórnarformaður Leikminjasafnsins, setur málþingið.

Ólafur J. Engilbertsson, sagnfræðingur og leikmyndahöfundur: “Rétt landslag eða róttæk list?” – sögunni miðlað á sviðinu.

Ingibjörg Björnsdóttir, listdanskennari: “Ausdruckstanz” á íslensku leiksviði – Um dansarann Ellen Kid.

Magnús Þór Þorbergsson, lektor við Leiklistardeild Listaháskóla Íslands, "Hvað eigum við að kalla instructör?" -  Nokkrar hugleiðingar um stöðu leikstjórans í íslensku leikhúsi á 3. áratugi síðustu aldar.

Jón Viðar Jónsson, forstöðumaður Leikminjasafns Íslands: Að dæma eða ekki að dæma.  Hugleiðingar um tilvistarvanda íslenskrar leiklistargagnrýni á fyrri hluta síðustu aldar. 

Trausti Ólafsson, leiklistarfræðingur: Nýjársnóttin: Gleðileikur Indriða Einarssonar og íslenskir samtímaviðburðir. 

Björn G. Björnsson, leikmyndahöfundur: Hvernig geymist leiklist?

Umræðum stýrir Dagný Kristjánsdóttir prófessor við H.Í. 

deila á facebook