Málþing: Þjóðkirkja verður til

Hvenær hefst þessi viðburður: 
6. nóvember 2009 - 10:00 to 14:30

Málþingi í tilefni af því að hundrað ár eru liðin frá almennri prestastefnu á Þingvöllum 1909

Þjóðkirkja verður til

Föstudaginn 6. nóvember n.k. gengst Guðfræðistofnun Háskóla Íslands fyrir málþingi af ofangreindu tilefni. Þingið fer fram í kapellu Háskóla Íslands, Aðalbyggingu, og hefst kl. 10.00.

Dagskrá:

  • Þingsetning
  • Hjalti Hugason próf.: Samband ríkis og kirkju og prestastefnan 1909.
  • Pétur Pétursson próf.: Um Þórhall biskup Bjarnarson og kirkjuskilning hans.
  • Dr. Sigríður Guðmarsdóttir: Frelsið, reynslan og jafnréttið í skuggsjá prestastefnunnar 1909.

Kaffihlé

  • Arnfríður Guðmundsdóttir próf.: Valgerður biskupsfrú og kvennabaráttan í upphafi 20. aldar.
  • Jón Ma. Ásgeirsson próf.: Altarissakramentið: Frá sálarrannsóknum til hugsunarvísinda.
  • Gunnlaugur A. Jónsson próf.: "Faðir minn var umreikandi Aramei." Fornar trúarjátningar Gamla testamentisins og umræður um trúarjátningar á prestastefnu 1909.
  • Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson: Lúther „sannur menntunnar-, ættjarðar- og frelsisvinur». Lúthertúlkun á Íslandi um aldamótin 1900.
  • Almennar umræður

Sólveig Anna Bóasdóttir dósent stýrir málþinginu.

Málþingið er öllum opið.

deila á facebook