Málþing Orators um gengislán bankanna

Hvenær hefst þessi viðburður: 
11. nóvember 2009 - 12:00 to 13:30

Málþing Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, verður haldið miðvikudaginn 11. nóvember kl. 12:00 í stofu 101 í Lögbergi, húsi lagadeildar Háskóla Íslands.

Fjallað verður um svokölluð gengislán eða lán í erlendri mynt. Á síðustu árum voru lán, sem bundin voru við dagsgengi erlendra gjaldmiðla, fyrirferðarmikil.

Spurningar hafa vaknað um lögmæti þessara lána, einkum gagnvart lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Á málþinginu verða rædd helstu lögfræðilegu álitamálin í tengslum við þessi lán.

Frummælendur verða: Eyvindur G. Gunnarsson, lektor við Lagadeild Háskóla Íslands. Jóhannes Karl Sveinsson, hæstaréttarlögmaður hjá Landslögum, Björn Þorri Viktorsson, hæstaréttarlögmaður hjá Lögmönnum Laugardal.

Fundarstjóri verður Hjalti Geir Erlendsson, funda- og menningarmálastjóri Orators.

LEX lögmannsstofa er aðalstyrktaraðili fræðastarfs Orators.

deila á facebook