
Síðastliðið sumar var framkvæmd rannsókn á fjölda og högum utangarðsfólks í Reykjavík. Rannsóknin var unnin í samvinnu við Nýsköpunarsjóð námsmanna og Velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Rannsóknin byggir á stefnumótun í málefnum utangarðsfólks sem samþykkt var haustið 2008 af velferðarráði Reykjavíkurborgar. Rannsóknir á þessu sviði hafa verið af skornum skammti hérlendis og aldrei áður hefur þessi hópur verið kortlagður nákvæmlega og því hafa tölur um fjölda einstaklinga sem teljast vera utangarðs og/eða heimilislausir á Íslandi verið mjög á reiki. Kynntar verða niðurstöður bæði kortlagningar og vettvangsrannsóknar, þar sem rætt var við einstaklingana varðandi almennar grunnþarfir, félagslega þætti, sjúkdóma, neyslu og afbrot.
Höfundar voru:
Elín Sigríður Gunnsteinsdóttir, félagsrfræðingur, Erla Guðrún Sigurðardóttir, MA nemi í félagsráðgjöf.
