Málstofuröð: Hvað er afburðakennsla? - Róbert R. Spanó

Hvenær hefst þessi viðburður: 
5. mars 2010 - 12:00 to 13:00

Ár hvert veitir Háskóli Íslands kennurum er þykja skara fram úr viðurkenningu fyrir lofsvert framlag við kennslu. Frá árinu 1999 hafa tólf kennarar við skólann hlotið slíka viðurkenningu. Kennslumiðstöð mun standa fyrir reglulegum málstofum á vormisseri 2010 þar sem nokkrir þessara kennara munu koma og ræða kennsluna sína. Meðal þess sem fyrirlesararnir munu ræða um er hvað þeir telji góða kennslu og hvað þeir leggi áherslu á í eigin kennslu.

Þriðja málstofa misserisins verður föstudaginn 5. mars og þá mun Róbert R. Spanó prófessor við lagadeild, halda erindi um kennsluna sína. Róbert hlaut viðurkenning fyrir framlag við kennslu árið 2006.

Málstofan verður haldin í stofu 304 í Árnagarði frá 12-13

 

Aðrar málstofur um kennslu vorið 2010: 

12. mars kl. 12-13, stofa: Árnagarður 304 Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor í stjórnun og stefnumótun, viðurkenning fyrir framlag við kennslu árið 2005

19. mars kl. 12-13, stofa: Árnagarður 304 Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor við guðfræðideild, viðurkenning fyrir framlag við kennslu árið 2003

9. apríl kl. 12-13, stofa: Árnagarður 304 Hjálmtýr Hafsteinsson, dósent á Verkfræði- og náttúruvísindasviði, viðurkenning fyrir framlag við kennslu árið 2000

16. apríl kl. 12-13, stofa: Árnagarður 304 Ásgeir Haraldsson, prófessor við læknadeild, viðurkenning fyrir framlag við kennslu árið 2004

deila á facebook