Hvenær hefst þessi viðburður:
22. febrúar 2010 - 12:15 to 13:15

Mánudaginn 22. febrúar kl. 12:15-13:15 verður haldin málstofa um barnavernd á vegum Barnaverndar Reykjavíkur, Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands og Barnaverndarstofu, undir yfirskriftinni Barnavernd og fjölmiðlar.
Sölvi Tryggvason sjónvarpsmaður mun fjalla um efnið út frá sjónarhorni fjölmiðla og Heiða Björg Pálmadóttir, lögfræðingur Barnaverndarstofu, fjallar um rétt barns til friðhelgi einkalífs.
Málstofan verður haldin á Barnaverndarstofu, Höfðaborg og er öllum opin.
