Málstofa RSH: Ánægja í starfi, streita og áhrif á heilsufar

Hvenær hefst þessi viðburður: 
13. febrúar 2012 - 12:10

Birna Flygenring, lektor við Hjúkrunarfræðideild, flytur erindið Ánægja í starfi, streita og áhrif á heilsufar - Rannsókn á Kragasjúkrahúsunum á málstofu RSH mánudaginn 13. febrúar kl. 12:10-12:50. Málstofan verður haldin í stosfu C-201 á 2. hæð Eirbergs.

Kragasjúkrahúsin hafa þurft að ganga í gegnum breytingar og mikinn niðurskurð í rekstri á síðustu 2 árum. Einnig hefur óvissa ríkt um framtíðarrekstur stofnana, einkum á Suðurlandi, Keflavík og í Hafnarfirði. Óhjákvæmilega hefur þetta tímabil verið erfitt fyrir stjórnendur og starfsfólk stofnananna. Í samtölum rannsakanda við stjórnendur hefur komið fram að starfsmönnum hefur oft liðið illa og þeir búið við mikið vinnuálag.

Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna starfsánægju, streitu og afleiðingar hennar á meðal sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga. Jafnframt að kanna líkamleg einkenni streitu, heilbrigðistengda hegðun, starfsskilyrði, vinnutíma og stuðning í starfi. Starfsánægjuþátturinn fagleg tækifæri hefur hæsta skýringahlutfall fyrir starfsánægjukvarðann og má því ætla að þessi þáttur hafi mest áhrif á starfsánægju þátttakenda. Streituþátturinn vanmat og einhæfni í starfi hefur hins vegar hæsta skýringahlutfall fyrir streitukvarðann og má því ætla að hann sé þá þáttur sem oftast veldur streitu hjá þátttakendum.

Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar starfandi á Kragasjúkrahúsunum eru almennt mjög ánægðir í starfi og ekki er munur á milli starfstétta á heildar starfsánægju. Hins vegar kemur í ljós þegar starfsánægja er metin út frá ákveðnum þáttum þá eru þáttakendur ánægðastir með þáttinn samstarfsfólk en óánægðastir með laun og hlunnindi. Mikil óvissa hefur ríkt um rekstur þessa stofnana og endurspeglast það í því sem veldur mesta álagi í starfi þ.e. sparnaðaraðgerðir, óvissa um framtíð stofnunarinnar, um framtíð deildar og óvissa um eigið starf. Óvissa um eigið starf veldur hjúkrunarfræðingum marktækt meiri streitu en sjúkraliðum. Jafnframt finna þátttakendur fyrir líkamlegum einkennum streitu einkum frá stoðkerfi.

deila á facebook