
Rannveig Björk Gylfadóttir, hjúkrunarfræðingur, MS, flytur erindið "Að takast á við lífið eftir krabbamein." Fýsileiki ráðgjafameðferðar sem byggð er á hugrænni atferlismeðferð fyrir fólk með krabbmeinstengda þreytu að lokinni krabbameinsmeðferð á málstofu RSH mánudaginn 26. mars kl. 12:10-12:50. Málstofan verður haldin í stosfu C-201 á 2. hæð Eirbergs.
Einstaklingum sem greinast með krabbamein og ljúka krabbameinsmeðferð fjölgar sífellt. Þeir búa oft við líkamlegar, sálfélagslegar og efnahagslegar langtímaafleiðingar þess, þar á meðal krabbameinstengda þreytu, en hún er eitt algengasta einkennið hjá fólki sem fær krabbamein. Þreytan hefur hinsvegar lítið verið rannsökuð. Einnig hafa fáar meðferðar- og endurhæfingarleiðir verið í boði til þess að draga úr afleiðingum þreytu.
Tilgangur verkefnisins var að skoða fýsileika ráðgjafameðferðarinnar „Að takast á við lífið eftir krabbamein“, sem veitt er af hjúkrunarfræðingi, byggir á hugrænni atferlismeðferð og rannsakandi hefur þýtt og aðlagað fyrir fólk sem er að takast á við þreytu að lokinni krabbameinsmeðferð. Rannsóknarsniðið var megindleg meðferðarrannsókn með aðlöguðu fortilraunasniði og óslembiskiptu upphafs- og eftirsniði. Þátttakendur voru sex konur á aldrinum 44-63 ára, meðalaldur 55 ára, sem höfðu fengið brjóstakrabbamein, lokið meðferð fyrir 2 árum að meðaltali og voru metnar með þreytu.
Niðurstöður verkefnisins benda til þess að meðferðin sé fýsileg. Konunum fannst verkþættir meðferðarinnar oftast hjálpa sér mikið við að takast á við þreytu og gáfu meðferðinni einkunnina 9,5 af 10 mögulegum stigum. Vísbendingar voru um betri líðan kvennanna eftir meðferðina. Áhrifastærð (effect size) meðferðar á þreytu mældist mikil, meiri á þreytukvarða Piper (PFS), d=2 en á númerakvarða (NRS), d=1,3. Áhrifastærð á vanlíðan á Vanlíðanarkvarðanum (Distress Thermometer) mældist líka mikil, d=1,3. Áhrifastærð á einkenni þunglyndis mæld með HADS-S mælitækinu var mikil, d=0,8 á meðan að áhrifastærð á kvíða mæld með HADS-S mælitækinu mældist lítil, d=0,3. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um áhrifastærð sem nýst getur við þróun meðferðar í klínísku starfi og til framtíðarrannsókna með stærra og fjölbreyttara úrtaki.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu RSH eða á netfanginu margbjo@hi.is
