
Vakin er athygli á málstofu Félagsráðgjafardeildar og Rannsóknastofnunar í barna- og fjölskylduvernd þann 1. september n.k. kl 16 -17 en þá mun breski fræðimaðurinn dr. Tess Rigde halda erindi um barnafátækt í Bretlandi og nýja löggjöf á því sviði. Málstofan er haldin í samstarfi við félags- og tryggingamálaráðuneytið í tilefni Evrópuársins 2010 sem er tileinkað baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun.
Dr. Tess Ridge er fræðimaður við Háskólann í Bath og rannsóknarsvið hennar snýr að fátækt, börnum, fjölskyldum og tryggingakerfi. Hún hefur birt fjölda greina og ritað bækur um málefnið. Nánari upplýsingar um Tess er að finna á vefsíðu hennar http://www.bath.ac.uk/soc-pol/people/tmridge.html
Málstofan er öllum opin
