
[English version below]
Málstofa læknadeildar verður haldin fimmtudaginn 5. nóvember milli 16:00 og 18:00, í kennslustofu á þriðju hæð í Læknagarði (hæð merkt með gulu). Léttar kaffiveitingar í boði.
Í þetta sinn verða fyrirlesarar fjórir. Már Kristjánsson, yfirlæknir, mun stýra málstofunni. Að loknu erindi Más kynna þrír meistaranemar við læknadeild verkefni sín, sjá hér að neðan.
Agnar Bjarnason: Meinvaldar samfélagslugnabólgu á Landspítala: Framsýn rannsókn. Umsjónarkennari og leiðbeinandi er Magnús Gottfreðsson. Samfélagslungnabólga er algengur og alvarlegur sjúkdómur um heim allan en hefur lítið verið rannsakaður á Íslandi þrátt fyrir að góð faraldsfræðileg þekking sé ein undirstaða meðferðar. Allir sjúklingar sem leggjast inn á Landspítala með lungnabólgu á rannsóknartímanum eru skráðir með framvirkum hætti og rannsakaðir með tilliti til einkenna, áhættuþátta, stigunar, meðferðar og horfa auk þess sem sérstakar rannsóknir eru gerðar með tilliti til orsakavalda.
Edda Vésteinsdóttir: Alvarleg sýklasótt á íslenskum gjörgæsludeildum. Tíðni og meðferðarárangur. Umsjónarkennari og leiðbeinandi er Gísli H. Sigurðsson. Edda mun kynna framsýna rannsókn á sýklasótt (sepsis) á íslenskum gjörgæsludeildum sem stóð yfir í 12 mánuði. Markmiðið var annars vegar að safna nýjum faraldsfræðilegum gögnum og hins vegar að kanna, að hve miklu leyti ,,Surviving Sepsis Campaign Guidelines" er fylgt í meðferð sjúklinga. Söfnun gagna lauk fyrr á árinu. Faraldsfræðihluti rannsóknarinnar verður kynntur.
Erla Soffía Björnsdóttir: Faraldsfræði hemólýtískra streptókokka af flokki B á Íslandi. Umsjónarkennari er Helga Erlendsdóttir, leiðbeinendur eru Karl G.Kristinsson og Gunnsteinn Æ. Haraldsson. Streptococcus agalactiae (group B streptococcus) er baktería, sem fyrst var tengd sýkingum í nautgripum, en síðar varð hún hins vegar þekktur sýkingavaldur í ífarandi sýkingum meðal nýbura og þungaðra kvenna og einnig hefur alvarlegum sýkingum af völdum þessarar bakteríu hjá fullorðnum fjölgað síðustu árin. Lítið er vitað um faraldsfræði þessara sýkinga á Íslandi. Markmið verkefnisins er að fá heildarmynd af faraldsfræði streptókokka af flokki B á Íslandi síðustu 30 árin.
Nánari upplýsingar um málstofuna má finna hér: http://www.hi.is/node/447
ENGLISH VERSION:
The next medical faculty seminar will be held Thursday, November the 5th between 16:00 and 18:00 in the classroom on the third floor in Læknagarður (floor marked with yellow colour). Light refreshments. The seminar will be in Icelandic.
We will have four lectures. Már Kristjánsson, chair of the department of infectious disease, will be the moderator of this session. Following his presentation, three MSc students will present their projects, see below (titles loosely translated by SHH):
Agnar Bjarnason: Pathogens of community-acquired pneumonia in Landspítali: A prospective study. Tutor: Magnús Gottfreðsson.
Edda Vésteinsdóttir: Severe sepsis in Icelandic intensitve-care units. Incidence and results of treatment. Tutor: Gísli H. Sigurðsson.
Erla Soffía Björnsdóttir: Epidemiology of haemolytic group B streptococci in Iceland. Tutors: Helga Erlendsdóttir, Karl G. Kristinsson, Gunnsteinn Æ. Haraldsson.
Further info on the seminars can be found here: http://www.hi.is/node/447
