Málstofa: Kynhneigð og fjölskyldan

Hvenær hefst þessi viðburður: 
17. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Næsta málstofa Rannsóknastofnunar í barna- og fjölskylduvernd og félagsráðgjafardeildar verður haldin 17. nóvember.

Þá mun Guðbjörg Ottósdóttir, félagsráðgjafi hjá Samtökum ´78, segja frá ráðgjöf við einstaklinga og aðstandendur þeirra sem starfrækt er hjá samtökunum og hlutverki félagsráðgjafa í slíkri ráðgjöf. Einnig ætlar hún að fjalla um hverjir það eru sem leita eftir ráðgjöf og ástæðum þess. Þá mun Guðbjörg segja frá þeim kenningarlegu nálgunum sem liggja að baki ráðgjafar við einstaklinga og fjölskyldur sem eru að takast á við samkynhneigð, tvíkynhneigð eða transgender málefni.

deila á facebook