Málstofa í sálfræðideild - Rannsókn á erfðum fíknsjúkdóma

Hvenær hefst þessi viðburður: 
26. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00
Fimmta málstofa sálfræðideildar á haustmisseri verður haldin fimmtudaginn 26. nóvember næstkomandi.
 
Ingunn Hansdóttir mun kynna rannsókn á vegum SÁÁ og Íslenskrar erfðagreiningar á erfðum fíknsjúkdóma.

Ingunn lauk BA prófi í Sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1990, MA prófi 1993 og svo PhD í klínískri sálfræði, frá Kaliforníuháskóla í San Diego árið 2003.
 
Rannsóknarstarf Ingunnar hefur beinst að þáttum sem skipta máli í aðlögun að langvinnum sjúkdómum. Frá árinu 2005 hefur hún starfað við rannsóknir hjá SÁÁ. Hún hefur verið sálfræðingur við Landspítala-Háskólasjúkrahús, auk þess að hafa um árabil sinnt kennslu hjá Háskóla Íslands og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í félagi um hugræna atferlismeðferð.

Málstofan er öllum opin
deila á facebook