Málstofa í hjúkrunarfræðideild: Norræna kengúrurannsóknin

Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. september 2010 - 12:10

Málstofa 27. september

Norræna „kengúrurannsóknin“ (Nordic skin-to-skin care)


Rakel Björg Jónsdóttir, sérfræðingur í hjúkrun nýbura á Vökudeild Barnaspítala Hringsins


Síðasta áratuginn hefur áhugi rannsakenda á húð við húð meðferð fyrir fyrirbura farið vaxandi. Húð við húð meðferð eða kengúra hefur verið skilgreind þannig að barnið, aðeins klætt í bleiu og hugsanlega með húfu, liggur á beru brjósti foreldra sinna. Rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæð áhrif kengúru á barnið og jafnframt foreldra þess en bent hefur verið á  hagstæð áhrif kengúru á tengslamyndun, brjóstagjöf, hitastjórnun og verki. En lítið er þó vitað  hversu mikið og fyrir hverja verið er að nota meðferðina, þörf er á klínískum leiðbeiningum. Landssamtök nýburahjúkrunarfræðinga í Bandaríkjunum (NANN) hafa birt leiðbeiningar um notkun kengúru fyrir fyrirbura sem fæddir eru eftir 30. viku meðgöngu en ekki eru til neinar norrænar leiðbeiningar um framkvæmd kengúru. Nú hefur verið stofnaður rannsóknarhópur nýburahjúkrunarfræðinga frá öllum Norðurlöndunum sem hefur það markmið að skoða að hve miklu leyti meðferðin  er veitt fjölskyldum fyrirbura. Einnig er markmiðið að kanna hvaða þættir hvetja til kengúrumeðferðar og hvað það er sem hindrar slíka meðferð. Sett hefur verið fram rannsóknaráætlun og til stendur að leggja rannsóknina fyrir á öllum nýburagjörgæsludeildum á Norðurlöndum nú í vor. Í erindinu verður meðal annars sagt frá kengúru og  rannsóknaráætluninni.

Málstofan er mánudaginn 27. september kl. 12:10 – 12:50 í stofu 201 Eirbergi, Eiríksgötu 34

Allir velkomnir


Nánari upplýsingar eru á heimasíðu RSH: www.rsh.hi.is eða á netfanginu sigrunol@hi.is

deila á facebook