Hvenær hefst þessi viðburður:
16. nóvember 2009 - 11:40 to 12:40

Gordon Lathrop er einn fremsti helgisiðafræðingur í heiminum í dag. Hann var um árabil prófesssor við Lutheran School of Theology í Philadelphia í Bandaríkjunum, en hefur undanfarið kennt helgisiðafræði við ýmsa háskóla og verið ráðgjafi um helgisiðafræði m.a. á Norðurlöndunum. Hann er Íslendingum að góðu kunnur því hann hefur komið hingað til fyrirlestrahalds áður og kennt námskeið á sínu sviði í Skálholti. Bækur hans eru notaðar við kennslu í Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.
Gordon flytur fyrirlestur sinn á ensku og nefnir hann: "A Liturgical Theologian looks again at Eucharistic Origins." Allir velkomnir.
