
Mánudaginn 29. mars mun Sigrún Gunnarsdóttir, lektor við hjúkrunarfræðideild HÍ, halda málstofu: Getur þjónandi forysta haft úrslitaáhrif á gæði heilbrigðisþjónustu?
Sjaldan hefur verið jafnmikil þörf fyrir skilvirk og örugg vinnubrögð í heilbrigðisþjónustunni. Fjölmargar rannsóknir, erlendar og innlendar, sýna að samvinna, uppbyggileg samskipti og styðjandi stjórnun hefur úrslitaáhrif á gæði og öryggi heilbrigðisþjónustunnar. Þjónandi forysta snýst um samskipti þar sem traust, stuðningur, frelsi, samtal og gagnkvæm þjónusta eru grundvallaratriði. Hugmyndafræðin felur í sér aðferðir sem koma heim og saman við þætti sem hafa marktæk jákvæð áhrif á líðan starfsfólks, árangur í starfi og öryggi sjúklinga. Rannsóknum á vægi þjónandi forystu fer fjölgandi og sýna jákvæð tengsl slíkrar stjórnunarhátta og góðrar útkomu fyrirtækja. Í fyrirlestrinum verður fjallað um rannsóknir um þjónandi forystu í heilbrigðisþjónustu hér á landi og unnar eru í samvinnu við Erasmus háskólann í Hollandi. Niðurstöður rannsóknanna samræmast niðurstöðum fyrri rannsókna um áhrifaþætti starfsumhverfis heilbrigðisþjónustunnar og sýna marktæk jákvæð tengsl milli flestra þátta þjónandi forystu og starfsánægju. Þjónandi forysta felur í sér ný tækifæri fyrir starfsfólk og stjórnendur heilbrigðisþjónustu til að styrkja árangursrík samskipti og efla gæði þjónustunnar.
Málstofan er mánudaginn 29. mars kl. 12:10 – 12:50 í stofu 201-C, 2.hæð Eirbergi, Eiríksgötu 34
Allir velkomnir
