
Málstofa 15.febrúar
Að missa eiginkonu úr krabbameini - áhrifaþættir kvíða og þunglyndis hjá ekklum 4-5 árum eftir missi.
Arna Hauksdóttir Ph.D.
Markmið rannsóknarinnar var að greina breytanlega áhættuþætti fyrir langvinnan sálrænan heilsubrest ekkla. Aðalhluti rannsóknarinnar, sem byggðist á faraldsfræðilegum aðferðum, tók til 907 manna í Svíþjóð sem misst höfðu eiginkonu úr brjósta- , eggjastokka- eða ristilkrabbameini árið 2000 eða 2001. Að auki var gögnum safnað frá 330 giftum mönnum til samanburðar sem paraðir voru við ekklana með tilliti til aldurs og búsetu.
Arna Hauksdóttir lauk doktorsnámi við Karolinska Institutet í Stokkhólmi í nóvember síðastliðnum. Aðalleiðbeinandi Örnu var Gunnar Steineck prófessor. Hún starfar nú sem nýdoktor við Miðstöð í Lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands.
Málstofan er mánudaginn 15. febrúar kl. 12:10 – 12:50 í stofu 201, 2.hæð Eirbergi, Eiríksgötu 34
Allir velkomnir
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu RSH: rhs.hi.is eða á netfanginu sigrunol@hi.is
