Málstefna Evrópusambandsins og áhrif hennar á tungu smáþjóða

Hvenær hefst þessi viðburður: 
24. september 2010 - 12:00 to 13:00

Gauti Kristmannsson, dósent í þýðingafræði við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, heldur erindi á fjórða fundi í fundaröð Alþjóðamálastofnunar Evrópa: Samræður við fræðimenn. Gauti fjallar um málstefnu Evrópusambandsins og áhrif hennar á tungu smáþjóða. Fundurinn fer fram í stofu 103 á Háskólatorgi og hefst klukkan tólf. Allir velkomnir.

Á næsta fundi í fundaröðinni,, föstudaginn 1. október, mun Jón Karl Helgason, dósent við íslensku- og menningardeild HÍ, fjalla um evrópska þjóðardýrðlinga.

deila á facebook