Lýðræðisleg umræða um stjórnarskrártillögur og hlutverk stjórnarskrár
|
01/02/2012 - 12:15 01/02/2012 - 13:30 |
Lögberg
Stofa 101 |
Málstofa í stjórnskipunarrétti.
Frummælendur:
Salvör Nordal forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ og fyrrverandi formaður Stjórnlagaráðs.
Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur.
Fundarstjóri er Björg Thorarensen prófessor við lagadeild HÍ.
Fjallað verður um áhrif lýðræðislegrar umræðu á mótun íslensku stjórnarskrárinnar í gegnum tíðina og vinnu stjórnlagaráðs við gerð frumvarps að nýrri stjórnarskrá. Þá verða ræddar hugmyndir um hlutverk stjórnarskrár og að hvaða marki er hægt að festa í hana leikreglur stjórnmálanna, siðferði í stjórnmálum og samskipti þings og ríkisstjórnar.
Að loknum erindum verða fyrirspurnir og umræður.
Allir velkomnir.

