Loftslagsmál og Evrópusambandið

Hvenær hefst þessi viðburður: 
24. febrúar 2012 - 12:00 to 13:00

 

Fundaröð Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands

EVRÓPA – SAMRÆÐUR VIÐ FRÆÐIMENN

Föstudaginn 24. febrúar, Lögberg 101, frá kl. 12 til 13.

Loftslagsmál og Evrópusambandið

 

Með hinum svonefnda orku- og loftslagspakka sem samþykktur var 2009 setti Evrópusambandið sér það markmið að fyrir árið 2020 yrði dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda um a.m.k. 20% miðað við losun ársins 1990. Meginstjórntækið er viðskiptakerfi með losunarheimildir sem er ætlað að skapa fjárhagslegan hvata til að draga úr losun. 

Í erindi sínu mun Navraj Ghaleigh, lektor við lagadeild Edinborgarháskóla, fjalla um það sem hann kallar annan loftslagspakka ESB. Hinn opinberi loftslags- og orkupakki ESB hefur verið lofsunginn bæði af þeim sem sömdu hann og fræðimönnum, en Ghaleigh mun velta upp þeim atriðum sem vandræðum kunna að valda. Var tiltrú ESB á markaðsstjórn gróðurhúsalofttegunda illa ígrunduð? Sýnir reynsla ESB að þessar væntingar standast ekki? 

Navraj Singh Galeigh er lektor við lagadeild Edinborgarháskóla og var áður lektor við King´s College í London. Hann stundaði nám við Cambridge háskóla, Evrópuháskólann í Flórens á Ítalíu og Kaliforníuháskóla í Berkeley. Hann hefur samið margar fræðigreinar um hinar lagalegu hliðar loftslagsmála, og er þekktur sérfræðingur á þessu sviði. 

 

Fundurinn, sem er opinn öllum, er haldinn í samstarfi við Stofnun Sæmundar fróða og fer fram á ensku. Fundarstjóri er Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða. 

 

deila á facebook