Lífríki eyja: sérstaða og þróun

Hvenær hefst þessi viðburður: 
21. nóvember 2009 - 13:00 to 13:30

Allt frá tímum Darwins og heimsóknar hans til Galapagoseyja hafa eyjar vakið athygli fyrir sérstætt plöntu- og dýralíf. Tröllvaxin skriðdýr og skordýr, ófleygir fuglar og sérstæðar plöntur finnast á mörgum eyjum. Þessi sérkenni lífríkja eyja gera þær að vinsælum vettvangi þróunarfræðirannsókna.

Hvernig dreifast tegundir til einangraðra úthafseyja? Hvað veldur því að yfirleitt fáar tegundir lifa á litlum úthafseyjum og af hverju er hlutfall einlendra tegunda oft hærri þar en á næsta meginlandi? Af hverju þróast jurtkenndar plöntutegundir í trjákenndar á úthafseyjum? Þessum spurningum og mörgum fleirum verður reynt að svara í fyrirlestrinum.

Sérstök áherslu verður lögð á brautryðjandi hugmyndir Darwins um lífríki eyja, sem hann kynnti í Uppruna tegundanna.

Hafdís Hanna er plöntuvistfræðingur og vinnur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands sem verkefnistjóri þróunarverkefnis um Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Rannsóknir Hafdísar hafa aðallega beinst að æxlunarkerfum plantna á heimskauta- og háfjallasvæðum en einnig á afskekktum eyjum Galapagoseyjaklasans.

Erindið er hluti af fyrirlestraröð í tilefni 200 ára afmælis Charles Darwin sem fram fer haustið 2009.

Dagskrá má nálgast á darwin.hi.is.

Erindið er öllum opið og verður flutt á íslensku.

Island biota: uniqueness and evolution

Hafdís Hanna Ægisdóttir, plant ecologist and project manager at the Agricultural University of Iceland, will give a lecture on island biota, its uniqueness and evolution. In her research. Hafdís Hanna has focused on plant breeding systems in high alpine and arctic areas. She has also conducted research on the evolution of breeding systems in plants in the remote Galápagos archipelago.

This presentation is part of a seminar series honoring Charles Darwin, as 200 years have passed since his birth.

The seminar series extends into December 2009, full schedule can be viewed on darwin.hi.is.

The seminar is free, open to all and will be given in Icelandic.

Styrktaraðillar: Menntamálaráðaneytið, Háskóli Íslands, Náttúrufræðistofa vestfjarða, Vísindafélag Íslands, Líffræðifélag Íslands, Gróco, Hólaskóli, Landbúnaðarskóli Íslands.

deila á facebook