
Dagskrá fyrir alla fjölskylduna í máli og myndum um jarðfræði og líffræðilega fjölbreytni Íslands.
Askja, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands.
Íslands er draumaland jarðvísindamannsinns með Atlantshafshrygginn og heitan reit undir landinu sem valda mikilli gosvirkni sem skapar nýtt land og umbylta því gamla. Gosið í Eyjafjallajökli eru nýjasta birtingarmynd um mátt náttúruaflanna.
Líffræði landsins á fáar hliðstæður. Þrátt fyrir að eyjan hafi verið þakin jökli fyrir 12000 árum, er samt mikil fjölbreytni í lífríkinu. Fjölbreytileiki náttúrunnar er auðlind, sem sjá má meðal annars í nytjastofnum og lífríki hafsins.
Jarðfræði og líffræði Íslands tvinnast stöðugt saman; Hlaup undan jöklum búa til stóra sanda, vistkerfi lands og hafs verða fyrir áhrifum af eldgosum, og í hraunjöðrum finnast ævafornar lífverur sem lifðu ísöldina af.
Fjölmargir sérfræðingar Háskóla Íslands á sviði náttúru- og jarðvísinda munu segja frá í máli og myndum í samfelldri dagskrá, ljósmyndir og kvikmyndir sýndar, rannsóknastofur í Öskju verða opnar og fjölbreytnin höfð í fyrirrúmi.
“Líf á eldfjallaeyju” er dagskrá í tilefni af Degi umhverfisins og Degi jarðar, sem Sameinuðu þjóðarinnar hafa sérstaklega tileinkað líffræðilegri fjölbreytni árið 2010. Dagskráin í Öskju stendur frá klukkan 11 til 15 laugardaginn 24. apríl og er ætluð öllum aldurshópum.
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá
Kl 10:30 Kristín Vala Ragnarsdóttir (Forseti VogN) - setning og kynning Dagur jarðar
Kl.10:40 Inngangur um líffræðilega fjölbreytni - Guðmundur I. Guðbrandsson Kynning
Kl 11:00 Fjölbreytileiki nytjastofna: dýrmætasta auðlindin? - Guðrún Marteinsdóttir Sjófiskar
Kl 11:20 Mörg andlit íslenskra ferskvatnsfiska - Sigurður S. Snorrason Fiskar í vötnum
Kl 11:40 Hryggleysingjar í sjó við Ísland - Jörundur Svavarsson:Fallegar furðuskepnur
Kl 12:00 Verndun íslenskra votlenda - Gísli Már Gíslason Votlendi
Kl 12:20 Eldgos - Björn Oddsson Eldgos
Kl 12:40 Áhrif ösku á fólk - Kristín Vala Ragnarsdóttir Eitur í ösku
Kl 13:00 Verndun og fjölbreytni flóru Íslands - Ólöf Birna Magnúsdóttir Plöntur
Kl 13:20 GPS mælingar á eldfjöllum - Sigrún Hreinsdóttir Eldfjöll
Kl 13:40 Eldgos - Björn Oddson Eldgos
Kl 14:00 Líffræðilegur fjölbreytileiki og dagur jarðar - Hrund Ólöf Andradóttir Fjölbreytileiki
Kl 14:20 Örverur hér og þar - Ólafur S. Andrésson Örverur
Kl 14:40 Erfðabreytileika innan tegunda á Íslandi - Snæbjörn Pálsson Íslenskar tegundir
Kl 15:00 Uppruni tegunda - Arnar Pálsson Þróun
