
Ráðstefnan er ætluð kennurum á öllum skólastigum og öðrum áhugasömum um málefnið. Þar verða flutt erindi um stöðu læsis og leiðir í átt til betra læsis. Eftir hádegi geta ráðstefnugestir valið að heimsækja mismunandi smiðjur þar sem kynntar eru áhugaverðar leiðir sem farnar eru á ýmsum skólastigum.
DAGSKRÁ:
10.00 Mæting og kaffisopi
10.15 Sæmundur Helgason formaður SM flytur stutt ávarp
Fundarstýra: Ingibjörg Einarsdóttir
Erindi:
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra
Rósa Eggertsdóttir sérfræðingur, skólaþróunarsviði HA
Guðmundur B. Kristmundsson, dósent HÍ
Hrafnhildur Ragnarsdóttir, prófessor HÍ
12.15 Hádegishlé – Súpa og brauð
13.15 – 14.30 Smiðjur
1. Leikskóli - Árdís Hrönn Jónsdóttir og Inga María Ingvarsdóttir úr leikskólanum Tjarnarseli
2. Yngsta stig grunnskóla - Rannveig Lund og Guðlaug Einarsdóttir úr Flataskóla
3. Miðstig grunnskóla - Guðmundur Engilbertsson frá HA og Guðjón Ragnar Jónasson úr Austurbæjarskóla
4. Unglingastig – Anna Steinunn Valdimarsdóttir og Fríða Haraldsdóttir úr Laugalækjarskóla
5. Framhaldsskólinn - Eiríkur Brynjólfsson og Elín Vilhelmsdóttir frá FÁ
14.30- 15.15 Opið hús í Læsissmiðju Menntavísindasviðs HÍ - Léttar veitingar
Skráning á námskeiðið fer fram hjá Lilju M. Möller liljam@vesturbaejarskoli.is, Guðjóni Ragnari Jónassyni gudjon@austurbaejarskoli.is og Sæmundi Helgasyni saemundurhe@langholtsskoli.is fyrir 1. febrúar 2010.
