Kynningarfundur fyrir nýnema í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands

Hvenær hefst þessi viðburður: 
25. ágúst 2010 - 10:00 to 12:00

Kynningarfundur um hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands verður haldinn miðvikudaginn 25. ágúst kl. 10:00-12:00 í húsi menntavísindasviðs HÍ sem stendur á horni Stakkahlíðar og Háteigsvegar. Kynningin fer fram í fyrirlestrasal sem heitir Skriða og er staðsettur í nýbyggingu hússins, best er að ganga inn um inngang sem  snýr að Háteigsvegi.

 

Dagskrá:

  • Guðrún Kristjánsdóttir, deildarforseti, býður stúdenta velkomna.
  • Sunna Sigurðardóttir, deildarstjóri, kynnir hjúkrunarfræðideild.
  • Fulltrúi frá Námsráðgjöf HÍ kynnir starfsemi og hlutverk námsráðgjafar.
  • Fulltrúar frá Curator nemendafélagi hjúkrunarfræðideildar kynna félagið.

 

Kennsla á 1. ári hefst föstudaginn 27. ágúst samkvæmt stundaskrá.

 

deila á facebook