Hvenær hefst þessi viðburður:
2. september 2010 - 12:30 to 13:10

Fimmtudaginn 2. September frá kl. 12.30-13.10 munu fulltrúar frá Verkfræðideild og viðskiptadeild Háskólans í Zaragossa á Spáni flytja kynningu um skólastarfið við Háskólann í Zaragossa. Kynningin fer fram í stofu 157 í VR-II.
Kynntar verða námsleiðir við verkfræðideildir, tölvunarfræði, viðskiptafræði og í endurskoðun. Um þessar mundir er í gangi vinna við innleiðingu á Bolognia samkomulaginu. Mikil vinna hefur átt sér stað í gæðamálum hjá þeim og munu þær fara örlítið yfir þau mál.
Raquel Lacuesta Gilaberte frá tölvunarfræði og verkfræðideild
Ana Gargallo Castel frá viðskiptafræðideild
Luisa Esteban Salvador frá Endurskoðenda og fjármáladeild
