Hvenær hefst þessi viðburður:
17. febrúar 2012 - 12:00

Kynning á nýsköpunarsjóði námsmanna
Föstudaginn 17. Febrúar mun Hulda Proppé kynna nýsköpunarsjóð námsmanna. Kynningin verður á Háskólatorgi, stofu 104.
Allir áhugasamir nemendur og kennarar eru hvattir til að koma og kynna sér möguleika sjóðsins. Umsóknarfrestur er 8. mars.
Um nýsköpunarsjóð námsmanna.
Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráð háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.
