
Kvikmyndir frá Argentínu!
Risarnir frá Valdés
Föstudaginn 27. nóvember kl. l7.00. Lögbergi, stofu 101
Spænskan við Háskóla Íslands, Cervantes-setur og RIFF (Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík) standa að frumsýningu myndarinnar argentínsku kvikmyndarinnar Risarnir frá Valdés (sp. Gigantes de Valdés 2008) hér á landi. Tilefnið er að hér á landi er staddur argentínski fræðimaðurinn og rithöfundurinn dr. Enrique del Acebo Ibáñez, en hann fékk leyfi framleiðenda til að sýna myndina hér á landi endurgjaldslaust.
Prófessor Ibáñez hefur á undanförnum árum rannsakað stórborgarsamfélög Rómönsku Ameríku út frá hugtökunum rótleysi eða rótfestu í lífi fólks og af því tilefni verður stuttmynd hans Handfangið (sp. El asa 2009) sýnd sama dag, á sama stað, kl. l6.30 síðdegis. Myndin tekur 15 mín. í sýningu og gestum gefst kostur á að eiga samræður við Ibáñez í kjölfarið.
Myndirnar eru með enskum texta og er það von aðstandanda að sem flestir eigi þess kost að nýta sér þetta einstaka tækifæri og fylgjast með kvikmyndagerð í Argentínu um þessar mundir.
Risarnir frá Valdés (sp. Gigantes de Valdés 2008) Leikstjóri: Alejandro Tossenberger. Leikarar: Federico D`Elía, Miguel Dedovich, Alfredo Casero, Mirta Wons, Isabel Macedo, Georgina Barbarossa.
Útdráttur:
Myndin segir sögu Tómasar Bullrich (Federico DŽElía) sem starfar hjá alþjóðlegu útrásarfyrirtæki í ferðamannaiðnaði. Hann er sendur til starfa í Argentínu, nánar tiltekið til Valdés skagans í suðurhluta landsins. Tilgangur verkefnisins er að koma á fót fyrirtæki sem sér um móttöku erlendra ferðamanna. Í stað þess að sinna áformum fyrirtækisins hrífst Tómas af náttúru, dýralífi og lifnaðarháttum íbúa staðarins. Hann beinir athygli sinni og kröftum í nýjar áttir en þegar Morelo skipstjóri (Alfredo Casero) flettir ofan af raunverulegum áætlunum fyrirtækisins kynnist hann José (Miguel Dedovich) og ný tækifæri blasa við.
