Konfúsíusarstofnunin Norðurljós kynnir: Kung-fu sýning

Hvenær hefst þessi viðburður: 
18. febrúar 2011 - 19:30

Í tilefni kínverska nýársins sem gekk í garð 2. febrúar og 40 ára afmælis stjórnmálasambands Íslands og Alþýðulýðveldis Kína á árinu 2011, verður haldin glæsileg kung-fu sýning í Háskólabíói þann 18. febrúar kl. 19:30 í stóra salnum. 25 manna sýningahópur frá Kína sýnir útfærslur ýmissa kínverskra bardagalista þ.á.m. sverðadans, ljónadans, svipuleikni, ölvaða hnefaleika, Shaolin hnefaleika, spjóts- og sverðaskylmingar, tai jiquan og hefðbundið kung-fu. Einnig sýnir hópur frá Heilsudrekanum listir sínar.

 Sendiherra Kína á Íslandi, Dr. Su Ge, flytur ávarp.

Frábær skemmtun fyrir alla aldurshópa. Aðgangur er ókeypis.

  

Northern Light Confucius Institute presents: Beijing Sport University & Chengdu Sport University Kung-Fu performance

On the occasion of the Chinese New Year and the 40th anniversary of diplomatic relations between Iceland and the PRC, a spectacular martial arts show will be held on February 18th, at 7:30 PM in Háskólabíó. The show includes samples of various martial arts styles, such as Shaolin boxing, Drunken-fist boxing, spear and swordplay, taijiquan and more. A local martial arts group from Heilsudrekinn will also perform.

An opening address will be delivered by the Ambassador of the People's Republic of China, Dr. Su Ge.

Excellent fun for all ages. Open to all and free of charge.

deila á facebook