
Konfúsíusarstofnunin norðurljós sýnir heimildamyndina „Draumastarf Kína“, skrifuð og leikstýrð af Tommaso Facchin og Ivan Franceschini.
Draumastarf Kína er verkefni sem miðar að veita nýrri kynslóð kínverskra farandverkamanna athygli. Í kringum áramótin 2010 og 2011 ferðuðust kvikmyndagerðarmennirnir til Shenzhen og Perluárósa. Þar hittu þeir marga farandverkamenn, aðgerðasinna og samfélagssamtök sem stuðla að eflingu réttinda verkafólks.
Ferðalagið gaf af sér fjölda ljósmynda af verkamönnunum og heimildamynd þar sem þessir ungu verkamenn tala um sjálfan sig, lýsa lífi sínu, vonum, baráttunni fyrir réttindum, og draumum nýrrar kynslóðar í verksmiðju heimsins.
Sýningin er opin öllum og aðgangur er ókeypis.
Sýningartími: 55 mín.
Enskur texti.
