
Listahópur frá Guangxi Háskóla í Kína verður með sýningu í stóra sal Háskólabíós, þann 5. febrúar kl. 16:00.
23 manna listahópur frá Guangxi Háskóla, í suður Kína, flytur margvísleg atriði á sviði stóra sals Háskólabíós í u.þ.b. tveggja klukkustunda sýningu, sem er einstakt tækifæri til að kynnast kínverskri dans-, söng- og bardagalist.
Hópurinn mun flytja 10 dansatriði, 4 söngatriði og 2 kung-fu atriði. Hvert atriði hefur sitt séreinkenni hvað varðar uppruna, útfærslu og merkingu. Þau tengjast sérstaklega þeim fjölmörgu þjóðarbrotum í Kína og kynna fyrir áhorfendum sérkenni þeirra með dansi og söng. Þess má geta að hópurinn flytur einnig lag Bjarkar Guðmundsdóttur „Oceania“, sem hún flutti á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Aþenu árið 2004.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis!
------------------------------
The Guangxi University Artist Troupe performs at the main hall of the University Theater on February 5th at 16:00.
A 23 member artist troupe from Guangxi University, in south China, will perform a two hour show on the stage of the main hall at the University Theater. The show is a unique opportunity to witness Chinese dance, song and martial arts.
The artist troupe will perform 10 dance routines, 4 songs, and 2 kung-fu routines. Each routine has its unique characteristics in relation to its origin, realization and meaning. They are also particularly linked to the many ethnic minorities living in China and make their distinctive features known to the audience with dance and song. The troupe will also perform a song by Bjork, “Oceania”, which she performed at the opening of the 2004 Athens Olympics.
Everyone is welcome and admission is free!
