
Konfúsíusarstofnun kynnir hádegisfyrirlestur Sigrúnar K. Valsdóttur,
„Fastar á jaðrinum: Farandverkakonur í Beijing.“
Lögberg 103, kl. 12:00-13:10
Í fyrirlestrinum mun Sigrún K. Valsdóttir segja frá rannsókninni sem hún framkvæmdi í Beijing síðastliðið haust fyrir MA verkefni sitt í mannfræði, sem hún vinnur að um þessar mundir. Hún dvaldi í Kína í fimm mánuði árið 2010 og þrjá mánuði 2011, þar sem hún tók viðtöl við ungar farandverkakonur og gerði vettvangsrannsókn á Yaxiu-markaðnum. Lokaritgerðin segir frá stöðu farandverkakvenna í Beijing og áhrif hukou búsetuskráningakerfisins á daglegt líf þeirra. Einnig eru málefni farandverkafólks tekin fyrir, sem segja má að séu föst á jaðri kínversks borgarsamfélags. Að lokum fjallar hún um sjálfsmynd farandverkakvenna og kínversku fjölskylduna.
Áherslur Sigrúnar í náminu hingað til hafa helst tengst innflytjendum, fjölmenningu og þjóðernishópum. Hún hefur mikinn áhuga á málefnum tengdum Kína og þá sérstaklega stöðu farandverkafólks. Sigrún útskrifaðist sumarið 2010 með BA próf í mannfræði við HÍ. Umfjöllunarefni BA ritgerðar hennar var réttindabarátta Úígúra í Xinjiang-héraði og þjóðernishyggja, auk samanburðar á stöðu Úígúra og Mongóla í Innri-Mongólíu.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
