(Klíku)ráðningar hjá ríkinu? Gylfi Dalmann Aðalsteinsson

14/09/2010 - 12:00
Oddi
Stofa 101

Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar

 (Klíku)ráðningar hjá ríkinu?

Undanfarin ár hafa komið fram ýmsar gagnrýnisraddir þess efnis að ekki væri  nægilega faglega staðið að ráðningum hjá hinu opinbera. Þessi gagnrýni beindist m.a. að því að embættisveitingar hjá hinu opinbera hafi einkennst af, klíkuráðningum (e.nepotism), greiðaráðningum (e. patron-client obligations) og ráðningum sem ganga út á að vinir vina fá stöðu eða embætti (e. cronyism).

 

Í þessari málstofu verður gerð grein fyrir þessari gagnrýni, hugtök skýrð og þau sett í samhengi við aðferðir mannauðsstjórnunar þegar kemur að ráðningum og vali starfsmanna.

Gylfi Dalmann Aðalsteinsson er dósent í Mannauðsstjórnun.

deila á facebook