KILROY til Íslands- kynning á ferðaskrifstofu fyrir stúdenta
|
09/09/2010 - 10:00 09/09/2010 - 16:00 |
Háskólatorg
Við Bóksöluna |
Í dag verður ferðaskrifstofan KILROY með kynningu á Háskólatorgi, en fyrirtækið hefur hafið starfsemi á Íslandi. KILROY er alþjóðleg ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í ævintýra- og bakpokaferðum fyrir ungt fólk og námsmenn og er fremst á sínu sviði á Norðurlöndum. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar sínar í Kaupmannahöfn en starfsmenn þaðan munu leggja leið sína til landsins í þeim sérstaka tilgangi að kynna þjónustu sína fyrir íslenskum háskólanemum.
Sýnd verða myndbönd af heimasíðunni, kilroy.is, kynntar verða ferðir til framandi slóða í gegnum KILROY travels og ráðgjöf sem í boði verður fyrir íslenska námsmenn sem vilja fara í nám erlendis í gegnum KILROY education. Einnig verður hægt að skrá sig í heimsreisuhappdrætti KILROY á staðnum en útdrátturinn fer fram á opnunarhátíðinni sem fram fer í kvöld, kl 20, á tónleikastaðnum Faktorý (gamla Grand Rokk).
Nemendur eru hvattir til að mæta á kynninguna og spyrja sérfræðinga í bakpoka- og ævintýraferðum spjörunum úr um allt sem viðkemur ferðamennsku á framandi slóðir. Fyrir frekari upplýsingar sjá fréttatilkynningu á heimasíðunni.

