Jyrki Iivonen: 'Finland - a Survival Strategy for a Small Country'

Hvenær hefst þessi viðburður: 
1. september 2010 - 12:00

Miðvikudaginn 1. september býður Alþjóðamálastofnun og rannsóknarsetur um smáríki við Háskóla Íslands til hádegisfundar með Dr. Jyrki Iivonen, yfirmanni upplýsingadeildar finnska varnarmálaráðuneytisins. Fundurinn fer fram í Norræna húsinu og hefst kl. 12.

Finnland telur um fimm og hálfa miljón íbúa og telst því enn til smærri ríkja Evrópu. Landið hefur löngum þurft að glíma við margvísleg vandamál, allt frá blóðugum átökum til efnahagslegs skipbrots. Finnska þjóðin hefur þó ætíð sýnt mikla þrautseigju og hefur oftar en ekki náð að yfirstíga gífurlegt mótlæti sem hefur áunnið henni ómælda virðingu samstarfsríkja innan Evrópusambandsins. En hvaða máli skiptir skýr stefnumótun þegar kemur að því að yfirstíga hindranir sem þjóðir standa frammi fyrir? Geta önnur smáríki, Ísland þar með talið, lært eitthvað af reynslu Finnlands?

Dr. Jyrki Iivonen hefur lengi haft mikil áhrif á stefnumörkun Finnlands í öryggis-og varnarmálum, auk þess að vera virtur fræðimaður, rithöfundur og kennari. Mun hann á fundinum ekki aðeins fara yfir öryggis-og varnarmál heldur einnig ræða pólitíska og efnahagslega þætti öryggis, í bæði fortíð og nútíð.

Kristrún Heimisdóttir, lögræðingur, mun opna umræður að loknu erindi Iivonen en fundarstjóri verður Alyson Bailes, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild HÍ. Fundurinn fer fram á ensku og er öllum opinn.

deila á facebook