Jafnréttisdagar: Allt sem þú vildir ekki vita... um klámvæðingu - Opinn umræðufundur

Hvenær hefst þessi viðburður: 
24. september 2010 - 14:00 to 15:30

Á fundinum, sem er hluti af dagskrá Jafnréttisdaga 2010 í Háskóla Íslands, verður fjallað um eðli klámvæðingar, hvernig hún birtist sem fyrirbæri, viðhorf almennings til klámvæðingar og hvaða áhrif hún hefur á jafnrétti kynjanna.

Á fundinum flytja erindi þau Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, menntunarfræðingur og prófessor við HÍ og HA, og Katrín Anna Guðmundsdóttir, jafnréttishönnuður og stundakennari í kynjafræði við HÍ.

Með fundinum er haldið áfram umfjöllun um klámvæðingu, og siglir hann í kjölfar fundarins "Menning og klám í Háskóla Íslands" sem haldinn var fyrr á árinu. Mikill áhugi var á þeim fundi, en fullt var út úr dyrum og þurftu mörg frá að hverfa, og voru mjög kröftugar umræður í kjölfar erinda þeirra Ólafs Páls Jónssonar og Thomasar Brorsen Smidt.

Að erindum þeirra Ingólfs og Katrínar loknum verður opnað fyrir umræður og spurningar úr sal.

Fundinn setur Brynhildur G. Flóvenz, formaður jafnréttisnefndar Háskóla Íslands.

Fundarstjóri er Ólafur Páll Jónsson, dósent í heimspeki á Menntavísindasviði HÍ.

Að fundinum standa jafnréttisnefndir Háskóla Íslands, Stúdentaráðs HÍ og fræðasviðanna fimm innan HÍ.

deila á facebook