Interpreting today... and tomorrow

Dr. Dörte Andres heldur fyrirlestur um ráðstefnutúlkun á vegum Þýðingaseturs Háskóla Íslands fimmtudaginn 2. sept. í stofu 101 í Odda. Í fyrirlestrinum fer hún yfir stöðu túlkunar í evrópsku samhengi og veltir vöngum yfir væntanlegri þróun. Ráðstefnutúlkun hefur til þessa verið lítt stunduð á Íslandi en hefur fengið aukið vægi á undanförnum árum með vaxandi hnattvæðingu. Túlkun skipar stóran sess í öllu Evrópusamstarfi og er þegar mikil þörf fyrir túlka af þeim sökum og mun hún fara vaxandi.

Dörte Andres er kennir ráðstefnutúlkun við Johannes Gutenberg-háskólann í Mainz í Þýskalandi og er einnig reyndur túlkur. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og eru allir velkomnir.

deila á facebook