
Námsbraut í ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnun efna í vetur, líkt og síðasta vetur, til hádegisfyrirlestra undir yfirskriftinni „Hvernig verður bók til?“.
Fyrir áramót veita þrír valinkunnir íslenskir rithöfundar innsýn í tilurð þekktra bóka, lýsa vinnulagi sínu frá hugmynd að fullfrágenginni bók og ræða um viðhorf sín til skáldskaparins. Auk þeirra mætir einn kvikmyndagerðarmaður og lýsir gerð vinsælla sjónvarpsþátta.
Þessi fyrirlestraröð vakti mikla athygli síðastliðinn vetur og fyrirlestrarnir voru allir mjög fjölsóttir.
Fyrirlestrarnir verða haldnir í Háskólabíó, sal 3, og standa öllum opnir.
Dagskrá fram að áramótum er eftirfarandi:
20. september: Elísabet Jökulsdóttir: Fótboltasögur
„Hver bók verður til á sinn sérstaka hátt, “ segir Elísabet Jökulsdóttir, „samt er einhver dulrænn þáttur í því, nákvæmlega einsog í hverju ljóði, – þessi dulræni þáttur felst kannski bara í tengingu milli tveggja heima, uppgjöf, hlustun, uppreisn, einhverju sem engill kemur með á bakka.“
Elísabet heldur fyrsta fyrirlestur haustsins í röðinni „Hvernig verður bók til?“ Hún er höfundur sem tekur ófyrirsjáanlegar beygjur á rithöfundarbrautinni og hefur lagt stund á mörg bókmenntaform. Hún talar um sagnasafnið Fótboltasögur: (tala saman strákar).
Í fyrra tóku sex höfundar til máls í þessari fyrirlestraröð sem er á vegum ritlistar og Bókmennta- og listfræðastofnunar Háskóla Íslands. Þeir veittu innsýn í tilurð þekktra ritverka, lýstu vinnulagi sínu frá hugmynd að fullfrágenginni bók og ræddu um viðhorf sín til skáldskaparins.
Síðar í haust taka þau Kristján Árnason þýðandi, Ragnar Bragason kvikmyndagerðarmaður og Kristín Helga Gunnarsdóttir barnabókahöfundur til máls í fyrirlestraröðinni.
18. október: Kristján Árnason: Ummyndanir
1. nóvember: Ragnar Bragason: Nætur-, Dag- og Fangavaktin
22. nóvember: Kristín Helga Gunnarsdóttir: Fíasól
Nánari upplýsingar um fyrirlestraröðina.
