Hvernig verður bók til? Einar Kárason: Ofsi

Hvenær hefst þessi viðburður: 
18. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Hvernig verður bók til?
– hádegisfyrirlestrar á vegum námsbrautar í ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnunar

Námsbraut í ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnun efna í vetur til hádegisfyrirlestra undir yfirskriftinni „Hvernig verður bók til?“ Þar munu valinkunnir íslenskir rithöfundar veita innsýn í tilurð þekktra bóka, lýsa vinnulagi sínu frá hugmynd að fullfrágenginni bók og ræða um viðhorf sín til skáldskaparins.

2009

miðvikudaginn 18. nóv. – Einar Kárason: Ofsi

Einar Kárason hefur lengi verið einn af atkvæðamestu höfundum þjóðarinnar og hefur komið víða við. Hann sendi frá sér skáldsöguna Ofsa árið 2008 og hreppti hún m.a. Íslensku bókmenntaverðlaunin.  Í sögunni stíga fram persónur frá Sturlungaöld og segja hug sinn í aðdraganda Flugumýrarbrennu.

Fyrirlestur Einars er hluti af röð hádegisfyrirlestra sem ritlist og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands efna til í vetur undir yfirskriftinni „Hvernig verður bók til?“ Þar veita íslenskir rithöfundar innsýn í tilurð þekktra ritverka, lýsa vinnulagi sínu frá hugmynd að fullfrágenginni bók og ræða um viðhorf sín til skáldskaparins.

2010

fimmtudaginn 21. janúar – Auður Ólafsdóttir: Afleggjarinn
fimmtudaginn 18. febrúar – Bragi Ólafsson: Gæludýrin
fimmtudaginn 18. mars – Ingibjörg Haraldsdóttir: Hvar sem ég verð

deila á facebook