Hvernig líður starfsfólki á vinnustað þegar búið er að skera niður og samstarfsfólki hefur verið sagt upp?

Hvenær hefst þessi viðburður: 
12. mars 2010 - 12:00 to 13:00

Þær aðstæður sem hafa skapast hér á landi eftir hrun fjármálakerfisins hafa haft umtalsverð áhrif á vinnumarkaðinn. Fjölmörg fyrirtæki og opinberar stofnanir hafa þurft að endurskoða rekstur með tilheyrandi niðurskurði, uppsögnum starfsfólks eða tilfærslum í starfi.

Í hádegisfyrirlestri Rannsóknastofu í vinnuvernd þann 12. mars nk. mun Ásta Snorradóttir, fagstjóri hjá Vinnueftirliti ríkisins fjalla um líðan starfsfólks á vinnustöðum í kjölfar skipulagsbreytinga og niðurskurðar. Í fyrirlestrinum verða kynntar niðurstöður rannsóknar sem Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja stóð að í samvinnu við Vinnueftirlit ríkisins og Háskóla Íslands meðal starfsmanna fjármálafyrirtækja í kjölfar bankahrunsins. Rannsóknin var framkvæmd í mars á síðasta ári.

deila á facebook