Hvernig er best að fjölga störfum á Íslandi?

Hvenær hefst þessi viðburður: 
28. september 2010 - 12:00

Málstofa hjá Viðskiptafræðideild: Hvernig er best að fjölga störfum á Íslandi?

 

Eitt af meginverkefnum Íslendinga eftir efnahagshrunið 2008 hefur verið og mun verða að fjölga störfum í landinu. Ríkisstjórnin leikur lykilhlutverk við þetta verkefni en margir aðrir hafa mikil áhrif. Skoðanir eru skiptar um hvaða leiðir eigi að fara og hvaða aðgerðir séu æskilegar og mikilvægar.
Því miður er engin patentlausn í boði og ekki mögulegt að svara spurningunni í titli erindisins á einfaldan hátt.

Í málstofunni verður gerð tilraun til að ná utan um viðfangsefnið, helstu þætti þess, sjónarhorn og samhengi. Einnig verða nokkur atriði skoðuð sérstaklega og ályktanir dregnar, sumar eflaust umdeildar.
   
 Snjólfur Ólafsson er prófessor í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

deila á facebook