Hvar er Trans í Háskóla Íslands?

Hvenær hefst þessi viðburður: 
16. nóvember 2009 - 12:00 to 20. nóvember 2009 - 23:59

Hvar er trans í Háskóla Íslands?

Dagana 16.-20. nóvember fara fram þrjár málstofur um málefni Transgender einstaklinga á Íslandi í tilefni alþjóðlegs minningardags transgender fólks - Transgender day of remembrance.

Málstofurnar eru samstarfsverkefni Q - félags hinsegin stúdenta og Trans Ísland og er markmiðið að fræða þátttakendur og gesti um stöðu Transgender einstaklinga í íslensku samfélagi, aflétta leyndinni sem hefur hvílt yfir málaflokknum og takast á við þá fordóma sem transfólk mætir í sínu daglega lífi. Með þessu fær transfólk vettvang til tjá skoðanir sínar, áhyggjur og heimssýn.

Málþingið hefst mánudaginn 16. nóvember með málstofu sem ber titilinn Trans 101: Allt sem þú vildir vita en þorðir ekki að spyrja um, þar sem Anna Kristjánsdóttir deilir sinni lífsreynslusögu og svarar spurningum þátttakenda úr sal í léttu og skemmtilegu andrúmslofti.

Allir eru velkomnir, sérstaklega þeir sem eru byrjendur í trans fræðum.

Þriðjudaginn 17. nóvember flytur Anna Jonna Ármanssdóttir fyrirlestur um sögu Trans réttindabaráttu á Íslandi og áhrif erlendis frá.

Miðvikudaginn 18. nóvember verður málstofan tileinkuð orðanotkun og því hvernig við tölum um trans á íslensku.Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur, mun flytja erindi sem nefnist ,,Yfir og út – hugtök og sjálfsmyndir í transheimum“, ásamt því að kynna nýjustu bók sína „Kynlíf - heilbrigði, ást og erótík“. Þar á eftir mun Davíð Þór Jónsson flytja stutt erindi og koma með tillögur að íslenskum þýðingum á hugtökum. Auk þessa verður boðið upp á bíósýningu í Norræna húsinu þriðjudaginn 17. nóvember sem hefst klukkan 18:00.

Allir eru velkomnir. Q - félag hinsegin stúdenta.

www.queer.is

gay@hi.is

Tengiliður: Jón Kjartan Ágústsson - jka1@hi.is s: 8485271

deila á facebook