Hugsaðu áður en þú sendir - opið málþing SAFT á alþjóðlegum netöryggisdegi

Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. febrúar 2010 - 14:30 to 16:30

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2010 er haldinn 9. febrúar undir yfirskriftinni „Hugsaðu áður en þú sendir”.

Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir opnu málþingi.

Fundarstjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson.

Dagskrá
• Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið
• Hrannar Pétursson, forstöðumaður almennatengsla hjá Vodafone: „Ringulreiðarmálið” - Myndbirtingar barna og unglinga á netinu. Hvað segja netþjónustuaðilar?
• Einar Norðfjörð og Anna Kristína Lobers, ungmennaráði SAFT: Reynsluheimur unga fólksins: Vinasöfnun og myndbirtingar á félagsnetsíðum
• Halldór J. Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi: Friðhelgi á jaðri netsins
• Jónas Kristjánsson, ritstjóri: Þolmörkin færðust til
• Salvör Kristjana Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands: Netsiðferði - Persónuvernd og pólitískur áróður
• Sólveig Jakobsdóttir, Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun, Menntavísindasviði Háskóla Íslands: Félagsnet í fræðilegu samhengi: Rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks á netinu
• Sigríður J. Hjaltested, aðstoðarsaksóknari, Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu: Rannsókn mála tengd netinu
• Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, og Emil Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Nýherja, veita verðlaun í nemendasamkeppni um gerð jafningjafræðsluefnis um jákvæða og örugga netnotkun
• Pallborðsumræður
• Veitingar

Málþingið verður sent beint út á netinu.

Upplýsingar á http://www.saft.is

deila á facebook